Plast og notkun þess hefur gríðalega slæm áhrif á umhverfið og dýrin. Það er orðið svo mikið um plast í sjónum að sjávardýrin eiga erfitt með að forðast það. Þar sem plast er litríkt og skrautlegt virðist því vera heppileg kræsing í augum dýranna. Plast er skaðlegt fyrir meltingarfæri þeirra og þegar þau neita þess ná þau ekki að melta það. Plastið festist því í maganum og veldur meltingarbilun. Í framhaldinu á þessu deyja þau. Ekki nóg með að þau borði plastið heldur flækjast þau líka í því. Það vefst um hálsinn sem veldur því að dýrin kafna. Það getur sömuleiðis valdið miklum sárum sem leiða síðan til sýkinga. Plast er ekki einungis að skaða dýrin heldur skaðar þetta einnig mannfólkið. Brennsla plasts veldur mengun í andrúmsloftinu og það andrúmsloft berst síðan niður í lungun okkar.
Plast er skaðlegt heilsunni
Venjulegt plast inniheldur skaðleg efni eins og :
PVC: Pólývínýlklóríð er gerviefni sem er oft bætt í plastafurðir ásamt mýkiefni. Efnið er mikið notað í leikföng, vindsængur, sturtuhengi o.s.frv. Polýstýrín: Plastefni sem er unnið úr jarðolíum ( etýlen og bensen ) og er notað í allt frá plástrum til byggingarefna. Pólýkarbónat: unnið úr fosgeni og bisfenól A. Fosgen er skaðlegt eiturefni jafnvel þótt notað sé lítið af því. Pólýkarbónat finnst í öll sem er gegnsætt og er óbrjótanlegt, finnst í t.d búsáhöldum og plastfilmum. Melamín: gervivefjarefni sem er notað í einnota plasthluti t.d. plastdiskar, -hnífapör o.s.frv.
Samkvæmt fjölda rannsókna hefur notkun þessara gerviefna slæm áhrif á heilsuna okkar. Sjúkdómar geta fylgt efnunum sem eru í plastinu. Dæmi um slíka sjúkdóma eru t.d. ófrjósemi, ofnæmi og hjartasjúkdómar. Plastmengun er mengun sem verkar af sorp hirðingu plasts í umhverfinu og hefur slæm áhrif á dýr, búsetu, fólk og umhverfið.
Árið 2014 kom í ljós að við Íslendingar hendum yfir 40 milljónum tonna af plasti í sjóinn á hverju ári. Mannkynið þarf að ranka við sér og sjá að plastmengunin er að völdum almennings. Með því sögðu er mikilvægt að allir flokki til þess að passa upp á dýrin, heilsuna og til að halda nátúrunni snyrtilegri :)