Ensím sem étur plast
Hvað er ensím?
Ensím eru sérhæfðir hvatar sem finnast í lifandi frumum og hvetja efnahvörfin í frumunum. Nær öll ensím eru prótein en örfá dæmi eru þekkt um kjarnsýrur með hvatahlutverk. Franski vísindamaðurinn Anselme Payen uppgötvaði fyrsta ensímið árið 1833. Í raun og veru er ensím gert úr öllum náttúrulegum efnum og fæðum sem finnast úti í náttúrunni og líkaminn okkar inniheldur ensím.
Núna nýlega í apríl 2018 varð til stórbrotin uppgötvun. Vísindamenn uppgötvuðu sérstaka tegund af ensími sem étur plast. Breytta ensímið varð óvart til og á uppruna sinn á rannsóknar stofu í Japan. En það er gert úr bakteríum sem geta étið upp PET (sterka plast efnið sem notað er í plastflöskur), sem tekur mörg hundruð ár að brotna niður í náttúrunni. PET hefur aðeins verið í ákveðnu miklu magni undanfarin 50 ár.
En árið 2016 þegar vísindamenn vildu kanna hversu mikið ensím hefði þróast í ákveðin langan tíma skoðuðu þeir vel alla hvatana í ensíminu og rannsökuðu þá ítarlega. Þá kom í ljós enn sterkari bakteríur voru nú þegar búnar að þróast í ensíminu sem gætu þá meltað plast. Frá þeim tímapunkti var hægt að þróa ensím í enn sterkari efni sem gæti étið upp plast alveg, það var gert núna í apríl 2018.
Hver væri tilgangur ensíms?
Uppgötvunin gæti hjálpað mjög mikið til við að ráðast gegn plastmengun á jörðinni og orðið til þess að hægt verði að endurvinna plastflöskur alveg. Fólk má ekki misskilja tilgang ensíms, þrátt fyrir að það sé mögulega búið að uppgötva ensím sem eyðir plasti þýðir það samt ekki að almenningur megi leyfa sér að kaupa eins margar plastvörur og þeim líkar, og hugsað svo að þau geta bara eytt því heima hjá sér. Það fer ennþá mengun fram við framleiðsu plasts. Ensím ætti fyrst og fremst að vera notað til að hreinsa jörðina af því núverandi plasti sem umykur hana.
Vanafesta
Mannkynið hefur vanið sig á ýmislegt en ekkert þeirra er jafn tilgangslaust og plastumbúðir. Við framleiðslu plasts fer ekki einungis fram mengun heldur verður líka til mengun við niðurbrot þess. Af því almenningur sér ekki það sem gerist bakvið tjöldin hjá t.d. sorpum og fleiru kýs það að hunsa það í hvívetna.
Vísindamenn vinna hörðum höndum til að finna fleiri lausnir við plastvandamálum jarðarinnar. Beru virðingu til jörð okkar (og munum að peningur er ekki grundvölur hamingju. Hugsum áður en við framkvæmum.)