Innblástur
Innblástur okkar að plastlausum lífstíl var fyrst og fremst tilgátan um hvernig hægt er að halda plastnotkun í skeifum. Þá datt okkur í hug að sýna fólki hversu auðvelt það er að sneiða hjá plastvörum. Þannig varð til hugmyndin um rannsóknarvikurnar tvær. Önnur viknanna varð að venjulegri viku og hin að plastlausri viku. Það sem ýtti undir þessa hugmynd enn fremur var myndband sem við fundum á netinu. Í því vídeói sýnir kona fram á það hvernig henni tókst að eyða einungis krukkufylli af rusli yfir fjögurra ára skeið.

Venjuleg vika
Við hófum rannsókn okkar á "venjulegri viku". Í þessu tilfelli er venjuleg vika sú vika sem við breytum ekki daglegri plasteyðslu okkar. Vikan var frá mánudeginum 7. maí til mánudaginn 14. maí og lenti því á þeirri viku sem við fórum í lokaferð 10.bekkjar. Það bætti ekki úr hlutunum þar sem einnota plastáhöld eru oftast notuð í slíkum ferðalögum til að einfalda fráganginn. Það var þess vegna sem við þurftum að taka með okkur ýmis plastáhöld, slíkt og skeiðar og skálar, með okkur heim frá Stykkishólmi.
Fólk gerir sér ekki grein fyrir hve mikið einnota plast það notar í raun og veru. Þegar þú færð þér kaffibolla í vinnunni kýst þú að fá þér það í pappírsglasi með plastloki eða færðu þér í glerbolla? Þegar þú kaupir í matinn notarðu plastpoka eða fjölnotapoka utan um matvörurnar? Færðu þér plastlok og -rör með gosinu á skyndibitastað? Þegar þú ert orðinn var við plasteyðsluna sem fer fram í lífi þínu geturðu ráðstafað þeirri visku til góðs og sáldrað þessari vitneskju enn fremur.

Plastlaus vika
Vikuna eftir á könnuðum við hvernig væri að lifa plastlausum lífstíl. Þá sneiddum við hjá öllu plasti í heila viku. Vikan var frá mánudeginum 14. maí til mánudaginn 21. maí.
Oft var erfitt að meta hvað við máttum nota þar sem flest allt í lífi okkar er úr einhverskonar plasti en við tókum þá ákvörðun saman að fjölnota plast væri í lagi þar sem við notum það oftar en einu sinni. Tannbursti og nestisbox flokkast undir fjölnota plast. Ein skilyrði sem við settum fyrir var að ef þú opnar eða klárar eitthvað í plasti safnar þú því plasthrúguna þína.

Tilgangur
Tilgangur þessarar rannsókn var til að vekja athygli á almenni plasteyðslu og til að sýna fram á hve vanafast mannkynið er í raun og veru. Þessi rannsókn opnaði augun okkar fyrir öllum þeim aðferðum sem hægt er að nota til að halda plastnotkun í skeifum.

Niðurstaða
Tara: Það reyndist erfitt í fyrstu þar sem ég ætlaði mér ósjálfrátt að taka skyrdollu í skólann fyrir nesti. Þá fór ég að leita að nesti sem var ekki umkringt plasti og það var nærri ómögulegt. Það kom mér á óvart hve mikið plast finnst í mörgum nauðsynjum okkar. Ískápurinn minn var allur stútfullur af alsskyns plastpakningum. Við gerum okkur ekki grein fyrir því að ástæðan fyrir því að skindimatur er svona auðveldur er vegna einnota plastsins sem umkringir það.
Það getur verið frekt að breyta venjum. Mannkynið er í eðli sínu vanafast.
Í þessari plastlausri viku tók ég sérstaklega eftir því hve holl ég varð. Ég var hætt að leita í auðvelda hluti eins og skyrdollu og núðlur (sem eru auðvitað pakkaðar í plasti) og fór að leita meira í grænmeti og ávexti sem koma beint úr náttúrunni eins og t.d. melónur og rófur.
Embla: Plastlausa vikan virtist ætla að vera auðveld, því við héldum að við værum með fullt af lausnum. Vikan var smá erfið fyrstu dagana vegna þess að ég var alltaf að gleyma mér þar og langflestur matur er pakkaður inn í plast og það er ekkert sem við getum gert í því. Mig langaði að borða karrí kjúkling, bláber, ávexti eða þurrkuð trönuber en það er allt saman í plastumúðum. Ég gleymdi mér í eitt skifti og og fékk mér krabba sem er pakkaður inn í plast. Eftir það notaði ég ekkert meira plast, ég var bara stanslaust að minna mig á að nota ekki plast en svo vandist það og í lok vikunnar var létt að muna að nota ekki plast. Það er létt að vera plastlaus ef maður reynir.
Nína: Þegar plastlausa vikan byrjaði taldi ég þetta vera ekkert mál þangað til ég opnaði ísskápinn minn. Allt var í plasti. Ég tímdi ekki að fá mér mat í plastumbúðum því þá þyrfti ég að geyma hann. En það kom mér á óvart hvað ég borðaði miklu fleiri ávexti og mikið af grænmeti. Ég tók samt líka eftir því hversu oft ég sleppti að taka með mér nesti í skólann því nánast allt var pakkað inn í plasti. Ég vinn nokkrum sinnum í viku í ísbúð og þar gegna ákveðin hreinlætisatriði. Það er skilda að nota gúmmí hanska við áfyllingu á ís og nammi, einnig á að gefa plastlok og plaströr með shake-um og bragðarefum. Auðvitað geymdi ég ekki plastið sem ég notaði sú viku því það var ekki val að vera ''plastlaus'' mér var skylt að gera það.
Eydís: Þegar við vorum fyrst að byrja í plastlausu vikunni hélt ég að þetta yrði ekkert vesen. Ég gerði mér ekki grein fyrir hversu mikil áskorun þessi vika myndi vera. Þetta byrjaði ekki vel þar sem nestið mitt fyrsta daginn var ávaxtadrykkur í plastflösku. Þessi vika tók gríðarlega mikið á en að lokum tókst mér að eyða litlu sem engu plasti. Þessi plastlausa vika var samt ekki eins slæm og hún lítur út fyrir að vera, ég tók meðal annars eftir því hversu lítið nammi ég borðaði í vikunni. Þetta var samt áhugaverð vika þar sem að ég lærði mikið að spara pening og nýta alla hluti sem að ég notaði. Að lokum sá ég muninn á venjulegu vikuni og plast lausu vikuni og var frekar hissa hversu mikið plast ég notaði í venjulegu vikunni.